
Bowenskóli Íslands
Hvernig getur Bowen hjálpað?
Í Bowenmeðferð eru notaðar léttar, rúllandi hreyfingar. Þær hafa áhrif á mjúkvefina sem aftur senda merki til heilans.
Bowen skólaárið 2026–2027: tveir hópar og tíu manns í hvorum hópi.
Sjá dagsetningarSkólaárið 2026–2027
Næstu námskeið
- 2. stig6.–8. nóvember 2026Seinni hópur
- 3. stig15.–17. janúar 2027Fyrri hópur
- 3. stig22.–24. janúar 2027Seinni hópur
- 4. stig19.–21. febrúar 2027Báðir hópar

Hvað er Bowen
Hvernig fer meðferðin fram?
Hvert skipti tekur um það bil 60 mínútur. Meðferð hefst eftir viðtal hjá meðferðaraðilanum þínum og samanstendur af sérhæfðum, léttum, rúllandi hreyfingum yfir mjúkvefjum líkamans og það má vera í fötum.
Ákveðin gerð af hléum er hluti af meðferðinni. Meðferðarþeginn hvílist á meðan á þeim stendur og líkaminn fær tækifæri til að ná nýju jafnvægi.

Námið
Nám í Bowentækni
Bowennámið á Íslandi er undir leiðsögn Jórunnar Símonardóttur Bowenkennara og er skipulagt undir eftirliti College of Bowen Studies. Nemendur stjórna námshraðanum sjálfir og fá stuðning kennara við að læra inn á bandvef líkamans, líffærin og virkni þeirra.
Námið hefst með starfsþjálfun. Frá og með öðru stigi taka nemendur sjálfir einstaklinga í Bowenmeðferð, fara ítarlega yfir sjúkdómssögu þeirra og gera nákvæmar skýrslur til að sýna fram á skilning á Bowentækninni.

Fyrir starfandi Bowentækna
Framhaldsnámskeið
Við leggjum mikla áherslu á endurmenntun og starfsþróun starfandi Bowentækna, sem tryggir áframhaldandi góða þjónustu við þá sem þurfa á henni að halda vegna heilsufarsvandamála sinna.
Vinnustofurnar geta gefið svör við erfiðum tilfellum og ýta undir starfsánægju Bowentækna.
Umsagnir nemenda
Umsagnirnar eru sóttar frá Trust.Reviews og Google. Þegar þú smellir á hnappinn hleðst efni frá þeim, sem getur sett vafrakökur.
Varstu í námi hjá okkur? Umsögnin þín fer á sameiginlega Google-síðu College of Bowen Studies, þar sem umsögnum frá öllum skólum þeirra er safnað saman.
Skrifaðu umsögn á Google (opnast í nýjum glugga)Spurningar um námið?
Hringdu í 863 4789 eða sendu okkur línu.
